Við SA gellur skelltum okkur suður á föstudag og spiluðum
leik...unnum hann
6-4... síðan gistum við í borg óttans, kíktum í smárann og
kringluna og svo var aftur
keppt á laugardagskvöldið....eftir leik átti svo að halda heim á
leið en það var ófært
og þurftum við því að gista í borginni og lögðum af atað klukkan
9 í morgun.
Annars er það helst að frétta að ég er að fara til Rúmeníu eftir
2 vikur...
en áður en ég fer þá þarf ég að skila 5 ritgerðum, halda
fyrirlestur og taka eitt próf plús það að við þurfum að gera
spurningalistann fyrir BA verkefnið og leggja hann fyrir áður en
við förum....ég veit hreinlega ekki hvernig manni á að takast þetta
allt saman plús það að mæta á allar æfingar og svo vill sarah líka
að við förum í ræktina aukalega
Þannig að ég býst svo sem ekki við að hafa mikinn tíma til að
blogga á næstunni
en þangað til næst...
Hanna